
Bransadagur Sviðslistanna 2026 fór fram í Þjóðleikhúskjallaranum þann 20. maí fyrir fullum sal af sviðslistafólki, stjórnendum, listamönnum og samstarfsaðilum víðs vegar af landinu.
Yfirskrift dagsins í ár var Sviðslistir á tímum breyttrar heimsmyndar og dagskráin samanstóð af ávörpum, erindum, samtölum, pallborðum og listrænum innslögum sem fjölluðu meðal annars um stöðu sviðslista á Íslandi, fyrstu skref inn í fagið, sviðslistir um land allt, sjálfbærni og verkefnaval.
Meðal þátttakenda voru Benedict Andrews, Gréta Kristín Ómarsdóttir, Erla Rún Guðmundsdóttir, Sigríður Rósa Bjarnadóttir, Alona Perepelytsia, Hallveig Kristín Eiríksdóttir, Ingi Þór Þórhallsson, Bergur Þór Ingólfsson, Greta Clough, Finnur Bjarnason, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Magnús Þór Þorbergsson, Snæbjörn Brynjarsson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, auk listrænna innslaga frá Hljómsveitinni Evu og Kabarett.
Á síðu Bransadags má nú finna ljósmyndir frá deginum ásamt upptökum úr dagskránni, sem hefur verið skipt upp í þrjá hluta.
Skoða myndir og upptökur →