Verkfærakista Sviðslistamiðstöðvar Íslands

Handbók fyrir umsækjendur í Sviðslistasjóð

Handbókin er ætluð umsækjendum í Sviðslistasjóð. Hér eru teknar saman helstu upplýsingar um umsóknarferlið, matsviðmið, fjárhagsáætlanir og ráð sem geta styrkt umsóknina. Efnið byggir á fræðslukvöldi Sviðslistamiðstöðvar og ráðgjöf sérfræðinga, framleiðenda og fyrrverandi fulltrúa í Sviðslistaráði.

““
Bestu umsóknirnar verða sjaldnast til á síðustu dögunum fyrir umsóknarfrest.

Gefðu hugmyndinni tíma

Bestu umsóknirnar verða sjaldnast til síðustu dagana fyrir umsóknarfrest. Þegar hugmynd fær tíma til að þróast verða textar skýrari, áætlanir raunhæfari og verkefnið sjálft sterkari heild.

Byrjaðu tímanlega

Umsóknin er umfangsmikil og tekur tíma í vinnslu. Byrjaðu snemma svo nægur tími gefist til að þróa hugmyndina, vinna fjárhagsáætlun og safna saman fylgigögnum.

Kynntu þér matsviðmiðin

Sviðslistaráð metur umsóknir út frá fyrirfram skilgreindum matsviðmiðum. Góð umsókn hjálpar ráðinu að svara þeim spurningum sem liggja til grundvallar matinu.

Hver er kjarninn?

Ef erfitt reynist að lýsa verkefninu í einni eða tveimur setningum er það oft merki um að hugmyndin þurfi frekari mótun. Reyndu að skilgreina kjarnann áður en þú ferð í ítarlegar lýsingar.

Sviðslistasjóður og Launasjóður sviðslistafólks

Þegar sótt er um í Sviðslistasjóð er jafnframt hægt að sækja um listamannalaun fyrir þátttakendur í verkefninu í sömu umsókn. Umsóknin er metin samhliða af Sviðslistasjóði og Launasjóði sviðslistafólks. Því er mikilvægt að setja fram heildstæða mynd af kostnaði og tekjum verkefnisins.

Sviðslistasjóður

Veitir framleiðslustyrki til sviðslistaverkefna.

Launasjóður sviðslistafólks

Styður vinnuframlag listafólks með starfslaunum.

Af hverju að sækja um bæði?

Með umsókn í báða sjóði fær Sviðslistaráð aukið svigrúm til að styðja verkefnið með þeim hætti sem hentar því best.

Aðeins að sækja um listamannalaun? Ef þú sækir ekki um framleiðslustyrk en vilt sækja um listamannalaun skaltu nota sérstaka umsókn á island.is/listamannalaun

Hvað er gott að hafa í huga?

Umsóknarferlið er umfangsmikið og krefst undirbúnings. Gefðu þér góðan tíma til að fylla út umsóknina, safna saman fylgigögnum og yfirfara allar upplýsingar áður en umsókninni er skilað.

1

Kynntu þér umsóknina áður en þú byrjar

Opnaðu umsóknarkerfið tímanlega og skoðaðu uppbyggingu umsóknarinnar áður en eiginleg vinna hefst. Farðu yfir reitina, kynntu þér hvaða upplýsingar og fylgigögn þarf að leggja fram og fáðu tilfinningu fyrir umfangi umsóknarinnar.

2

Skráðu heildarmynd verkefnisins

Settu fram allan kostnað og allar tekjur verkefnisins. Ekki reyna að laga fjárhagsáætlunina að mögulegri úthlutun eða reikna listamannalaun sérstaklega inn í hana. Byrjaðu á raunverulegri mynd af verkefninu.

3

Skráðu raunverulegan launakostnað

Launakostnaður er oft stærsti kostnaðarliður verkefnisins. Notaðu raunhæfar forsendur og skráðu þann kostnað sem verkefnið krefst í raun.

4

Veldu síðan umsókn um listamannalaun

Þegar launakostnaður hefur verið skráður er hægt að velja hvaða þátttakendur sækja um listamannalaun. Með því skapast meira svigrúm til stuðnings við verkefnið.

5

Ferilskrár allra þátttakenda í einu PDF

Ferilskrár allra þátttakenda skulu fylgja umsókn í einu PDF-skjali. Mikilvægt er að yfirfara öll fylgigögn vel áður en umsókn er send inn.

6

Vistaðu reglulega

Umsóknarkerfið vistar ekki sjálfkrafa. Mundu að vista hverja síðu áður en þú heldur áfram.

7

Hugleiddu rekstrarform verkefnisins

Almennt er mælt með að sótt sé um styrki undir kennitölu félags eða annars lögaðila fremur en persónulegri kennitölu. Það getur einfaldað umsýslu og skýrt betur fjárhagslega umgjörð verkefnisins.

Hvað metur Sviðslistaráð?

Við mat á umsóknum horfir Sviðslistaráð til þriggja meginþátta. Veitt eru stig á skalanum 0–10 og vægi þáttanna er sem hér segir.

50%
1. Gildi og mikilvægi verkefnisins
Hvert er gildi verkefnisins?
Metið er hversu áhugaverð og vel mótuð hugmyndin er og hvaða gildi hún hefur fyrir sviðslistir og áhorfendur.
🎭
Efling íslenskra sviðslista

Styður verkefnið við þróun og eflingu sviðslista?

🌈
Fjölbreytileiki

Bætir verkefnið við fjölbreytni í sviðslistalífinu?

👥
Áhorfendur og aðgengi

Hverjum er verkefnið ætlað og hvernig nær það til þeirra?

💡
Nýsköpun

Felur verkefnið í sér nýjar hugmyndir, aðferðir eða nálganir?

📋
25%
2. Trúverðugleiki framkvæmdar
Er verkefnið líklegt til að ganga upp?
Metið er hvort áætlanir séu skýrar, raunhæfar og styðji við markmið verkefnisins.
📄
Vinnulýsing

Er verkefninu lýst með skýrum og skiljanlegum hætti?

🗓
Verk- og tímaáætlun

Er framvinda verkefnisins raunhæf og vel skipulögð?

📊
Fjárhagsáætlun

Endurspeglar kostnaðaráætlunin raunverulegt umfang verkefnisins?

👥
25%
3. Sviðslistahópur
Er hópurinn líklegur til að ná markmiðum verkefnisins?
Metið er hvort samsetning hópsins styðji við markmið verkefnisins og hvort þátttakendur hafi reynslu, þekkingu eða skýra listræna sýn.
Fyrri verk og reynsla

Hvaða verk og verkefni liggja að baki?

👤
Reynsla og bakgrunnur

Hvaða faglegu og listrænu reynslu býr hópurinn yfir?

Nýliðun og þróun

Er hópurinn að hasla sér völl með áhugaverða umsókn?

ℹ️
Gott að hafa í huga

Þessar spurningar endurspegla það sem Sviðslistaráð horfir til við mat á umsóknum. Góð umsókn hjálpar ráðinu að sjá gildi verkefnisins, styrkleika þess og hvernig það verður að veruleika.

Fjárhagsáætlun og framkvæmd

Fjárhagsáætlun er ekki aðeins yfirlit yfir kostnað. Hún er verkfæri sem hjálpar þér að móta verkefnið og sannreyna hvort það sé raunhæft í framkvæmd.

💡 Jarðtengdu hugmyndina. Fjárhagsáætlun hjálpar þér að svara mikilvægum spurningum:

👥

Mannafli

Hversu margir koma að verkefninu?

🗓

Tími

Hversu mikinn tíma tekur undirbúningur og æfingar?

🎭

Aðföng

Hvað þarf að kaupa eða leigja?

📢

Kynning

Hvernig nær verkið til fólks?

💰 Reiknaðu raunhæfan kostnað

Reiknaðu raunhæf laun og annan kostnað. Miðaðu við gildandi taxta eða sambærileg viðmið (t.d. frá FÍL) þegar það á við. Laun sem endurspegla ekki raunverulegt vinnuframlag geta dregið úr trúverðugleika umsóknarinnar.

⚠ Hafðu greiðsluflæðið í huga

Styrkir eru ekki alltaf greiddir út í einni greiðslu. Hluti styrksins getur verið greiddur eftir að verkefni lýkur og lokaskýrslu hefur verið skilað. Taktu mið af því við gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar.

📂 Undirbúðu uppgjörið frá fyrsta degi

Geymdu reikninga, kvittanir og önnur heimildaskjöl jafnóðum. Við uppgjör þarf að vera hægt að sýna fram á kostnað verkefnisins.

Tíu góð ráð fyrir umsækjendur

Helstu ráð sem komu fram á fræðslukvöldi Sviðslistamiðstöðvarinnar um umsóknir í Sviðslistasjóð.

01
Komdu fljótt að efninu

Gerðu strax grein fyrir verkefninu. Ekki láta lesandann giska á hvort um sé að ræða danssýningu, leikverk eða annars konar sviðslistaverkefni.

02
Kjarnaðu hugmyndina

Geturðu útskýrt verkefnið í einni eða tveimur setningum? Ef ekki gæti hugmyndin þurft frekari mótun.

03
Hvers vegna þessi hópur?

Útskýrðu hvers vegna þú eða hópurinn ert vel til þess fallinn að vinna verkefnið og koma því til framkvæmda.

04
Tengdu við markmið sjóðsins

Sýndu hvernig verkefnið fellur að markmiðum og áherslum þess sjóðs sem sótt er um í.

05
Notaðu raunhæfar tölur

Hvort sem um er að ræða laun, aðkeypta þjónustu eða markaðskostnað skaltu sýna að fjárhagsáætlunin byggi á raunhæfum forsendum.

06
Fylgdu leiðbeiningum nákvæmlega

Lestu umsóknargögnin vel, svaraðu öllum spurningum og gakktu úr skugga um að fylgigögn séu á sínum stað.

07
Forðastu klisjur

Verið sértæk í lýsingum í stað þess að styðjast við innantóm lýsingarorð.

08
Láttu lesa yfir

Fáðu utanaðkomandi aðila til að lesa umsóknina. Of margar athugasemdir geta þó gert textann ómarkvissari.

09
Byrjaðu snemma

Bestu umsóknirnar verða sjaldnast til á síðustu dögunum fyrir umsóknarfrest. Gefðu verkefninu tíma til að þróast.

10
Líttu á umsóknina sem hluta af verkefninu

Umsóknarferlið getur hjálpað til við að skýra hugmyndina, styrkja verkefnið og móta næstu skref. Þótt styrkur fáist ekki strax nýtist vinnan við næstu umsókn eða næsta tækifæri.

Mistök sem geta veikt umsóknina

Að byrja of seint og skila á síðustu stundu

Að lýsa verkefninu óskýrt eða fela kjarnann í löngum inngangi

Að gera óraunhæfa eða of lága fjárhagsáætlun

Að sýna ekki hvernig verkefnið fellur að markmiðum sjóðsins

Að vanmeta vinnuframlag þátttakenda

Að senda umsókn án yfirlestrar

Skjöl og gagnlegir tenglar

Um handbókina

Handbókin byggir á fræðslukvöldi Sviðslistamiðstöðvar um umsóknir í Sviðslistasjóð. Efnið dregur saman ábendingar frá Óskari Eggerti Óskarssyni hjá Rannís, Ólöfu Ingólfsdóttur, fyrrverandi fulltrúa í Sviðslistaráði, og Ragnheiði Maísól Sturludóttur hjá Murmur Productions, auk umræðna og reynslu sem deilt var á viðburðinum. Efnið er ætlað sem leiðarvísir en kemur ekki í stað leiðbeininga og reglna sem birtar eru af Rannís.