Hér er yfirlit yfir þau tækifæri sem standa sviðslistafólki til boða einmitt núna. Við leitumst við að halda listanum uppfærðum en þar sem tækifærin eru fjölmörg er listinn ekki tæmandi. Við fögnum því öllum ábendingum um opin köll sem eiga heima hér á síðunni.
Alþjóðleg keppni stuttra sviðsverka, í hámarki 15 mínútur, á hátíðinni Teatri Riflessi á Sikiley. Sýningarlaun eru 500–1.100 evrur eftir fjölda flytjenda auk ferðaframlags, og verðlaunin eru meðal annars vinnustofudvalir og sýningartækifæri hjá samstarfshátíðum.
IETM býður allt að tíu fagmanneskjum í samtímasviðslistum gjaldfrjálsa aðild að netinu í fimm ár, með greiddri ferð á aðalfund netsins. Umsækjendur þurfa að minnsta kosti fimm ára starfsreynslu og áhersla er lögð á svæði þar sem IETM á fáa félagsmenn.
Styrkur frá Norræna menningarsjóðnum til að prófa metnaðarfulla hugmynd í samstarfi áður en hún verður fullmótað verkefni. Allt að 50.000 DKK án kröfu um mótframlag; sjóðurinn styrkir ekki sýningarferðir, framleiðslu eða rekstur.
Kópavogsbær veitir styrki til verkefna í listum, hönnun og arkitektúr. Einstaklingar, listhópar, félög, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um, og verkefnið þarf að hafa gildi fyrir menningarlíf í Kópavogi.
Styrkir til menningar- og samfélagsverkefna og til atvinnuþróunar og nýsköpunar á Suðurlandi. Hámarksstyrkur er 2,5 milljónir króna og byggðaþróunarfulltrúar SASS bjóða gjaldfrjálsa ráðgjöf fyrir umsókn.
Styrkir til verkefna á sviði menningar, nýsköpunar og atvinnuþróunar á Vestfjörðum. Menningarstofnanir með starfsemi allt árið geta einnig sótt um stofn- og rekstrarstyrki, og horft er til verkefna sem auka fagmennsku í listum á svæðinu.
Styrkir til menningar- og samfélagsverkefna og til atvinnuþróunar og nýsköpunar á Norðurlandi vestra. Fyrir árið 2026 voru 35 menningarverkefni styrkt.
Styrkir til verkefna sem falla að Sóknaráætlun Norðurlands eystra, meðal annars menningarverkefna og stofn- og rekstrarstyrkja. Umsækjendur þurfa að vera á svæðinu og sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki meira en helming kostnaðar.
Styrkir til menningar- og samfélagsverkefna, atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Suðurnesjum, auk stofn- og rekstrarstyrkja á sviði menningar. Verkefnin þurfa að falla að Sóknaráætlun Suðurnesja.
Styrkir til menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Austurlandi, auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarverkefna. Austurbrú býður vinnustofur og ráðgjöf við gerð umsókna.
Styrkir til menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefna á Vesturlandi. Umsóknir eru metnar af fagráði og úthlutunarnefnd og sótt er um í umsóknakerfi Rannís.
Perform Europe styrkir alþjóðlegar sýningarferðir og samstarf í sviðslistum innan Evrópu. Listafólk, leikhópar, hátíðir og sýningarstaðir sækja um saman og áhersla er lögð á sjálfbærni, jafnrétti og að koma verkum á ný landsvæði.
Þriggja eða sex mánaða vinnustofudvöl í Cité internationale des arts í París, opin sviðslistafólki jafnt sem myndlistarfólki. Innifalið er vinnu- og íbúðarrými, 1.000 € á mánuði, framleiðslustyrkur og ferðir; krafist er fimm ára starfsreynslu.
Danshöfundar og hópar geta sótt um sýningarferðalag um Svíþjóð á vegum Dansnät Sverige. Kallið er opið alþjóðlegu sem sænsku dansfólki sem starfar á faglegum grunni.
Almennur verkefnastyrkur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, að hámarki 1.500.000 kr., fyrir verkefni á málefnasviði ráðuneytisins – þar á meðal í menningu og listum. Úthlutað er þrisvar á ári; ríkisstofnanir og sveitarfélög geta ekki sótt um og ekki er styrktur rekstur eða nám.
Ferðastyrkur fyrir listafólk og menningarstarfsfólk til að vinna að verkefni í öðru Creative Europe landi. Greitt er 85 € á dag og 400–800 € í ferðakostnað, og umsóknir eru metnar í mánaðarlegum umferðum fram til 30. apríl 2027.