Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
4.29.26

Alþjóðlegt og íslenskt ávarp í tilefni alþjóðlega dansdagsins 29. apríl

Skilaboð alþjóðlega dansdagsins 2026 eftir Crystal PITE, Kanada

Manneskjur hreyfast - handleggir okkar teygja sig út, hné okkar falla saman, höfuðin hneigjast, bringa okkar hnígur saman, bakið sveigist.  

Við hoppum, yppum öxlum, kreppum hnefana, lyftum hvort öðru upp og ýtum hvort öðru frá okkur. Þetta er tungumál jafnt eins og það er athöfn. Þetta er það sem líkaminn hefur að segja um þarfir, ósigur, hugrekki, örvæntingu, þrá, gleði, óræði, gremju, ást. Þessar myndir vekja upp tilfinningar í huganum þar sem við höfum fundið svo einlæglega fyrir þeim í líkamanum - við höfum verið hreyfð. 

Við erum dansarar, öll. Lífið hreyfir okkur; lífið dansar með okkur. Hverfult eins og andardráttur, jafn áþreifanlegt eins og bein, dans er mótaður úr okkur. Við mótum rýmið. Við skrifum með líkömum okkar á orðlausu tungumáli sem skynjað er í djúpvitund okkar. 

Við fyllum rýmið innan okkar og í kringum okkur af náð þegar við dönsum.

 

Eins og lífið, skapar dansinn sjálfan sig og eyðir sér í hverju augnabliki. Eins og ástin, er hann handan skynseminnar. 

Mér finnst gott að hugsa um líkamann eins og staðsetningu; stað þar sem tilveran er geymd og hún mótuð. Þegar við dönsum, erum við í djúptengingu við þennan stað. 

Ég skrifa þetta snemma árs árið 2026, þegar enginn endir virðist vera á kúgun, ólgu og þjáningu í heiminum. Daglega, þegar við verðum vitni að þeim hörmungum sem mannfólkið er fært um að gera hvert öðru og vélvirki valdsins sem fjármagnar og knýr áfram ólýsanlegt ofbeldi á bæði manneskjum og jörðinni, virðist dansinn vera aumt og gagnslaust viðbragð. Það er erfitt að ímynda sér hvað danslistamaður getur gert í heimi sem þarfnast svo innilega róttækra breytinga og heilunar. 

En samt - listin, rétt eins og vonin, er birtingarmynd ástarinnar. Ögrandi í sköpun sinni í ljósi vanhelgunnar, leysir listin upp storknaðan huga og virkar sem smyrsl til þess að lækna hann. List er farvegur sem heldur utan um okkur á meðan við glímum við spurningar - saman - á hátt sem er frábrugðinn fréttum, frábrugðinn heimildarmyndum og fræðslu, frábrugðinn skoðunum og samfélagsmiðlum, frábrugðinn aðgerðum og mótmælum, en ekki ósamrýmanlegur þeim.

Í gegnum sköpun þróum við með okkur viðnám og von með litlum augnablikum af hugrekki, forvitni, góðvild og samvinnu. Í dansi, og í sköpun dans, finnum við sönnun þess að mannkynið er meira en síðasti sársaukafulli harmleikur okkar á alþjóðavísu.

En dansinn þarf enga réttlætingu, enga útskýringu. Hann er úr okkur gerður en skuldar okkur ekkert. Hann þarf aðeins líkama sem er tilbúinn að hýsa hann. Frá þeim stað getur hann þýtt hið ósegjanlega; verið sem milliliður milli okkar og þess óþekkta. 

Við hrífumst af þessum hverfulu ummerkjum fegurðar í augnablikinu. Og er við lifum bæði dansinn og hverfulleika hans erum við minnt á eigin hverfulleika. Á sama tíma, ef við gefum því gaum, getur dansinn veitt okkur einstaka innsýn í sálina.

Crystal PITE - BIO: 

Kanadíski danshöfundurinn Crystal Pite er fyrrverandi dansari hjá Ballet British Columbia og Ballett Frankfurt undir stjórn William Forsythe.

Á 35 ára ferli sem danshöfundur hefur Pite skapað yfir sextíu verk fyrir hópa á borð við The Royal Ballet, Nederlands Dans Theater, Paris Opera Ballet og National Ballet of Canada. Hún er þekkt fyrir verk sem takast ögrandi á við þemu eins og áföll, fíkn, átök, meðvitund og dauðleika; djörf og frumleg sýn hennar hefur aflað henni alþjóðlegrar viðurkenningar og haft áhrif á heila kynslóð danslistafólks.

Hún er formlegur listamaður (e. Associate Artist) við þrjár stofnanir: Nederlands Dans Theater, Sadler’s Wells (London) og National Arts Centre í Kanada. Hún hefur hlotið heiðursdoktorsnafnbót í myndlist (Doctorate of Fine Arts) frá Simon Fraser University, er meðlimur í Order of Canada og hefur hlotið heiðursnafnbótina Officier de l’Ordre des Arts et des Lettres frá Frakklandi.

Árið 2002 stofnaði hún Kidd Pivot í Vancouver, danshóp sem leitast við að eima og miðla al-mannlegum spurningum í listaverk sem tengja okkur við kjarna mannlegrar tilveru. Kidd Pivot er heimsþekktur fyrir róttæka blöndu dans og leikhúss og ferðast víða með verk sem hafa hlotið lof gagnrýnenda, svo sem Betroffenheit, Revisor og Assembly Hall (samvinnuverk með Jonathon Young), auk The Tempest Replica, Dark Matters, Lost Action og The You Show.

Pite hefur hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal Governor General’s Performing Arts Award árið 2022, Jacob’s Pillow Dance Award árið 2011 og Jacqueline Lemieux Prize árið 2012. Árið 2017 hlaut hún Benois de la Danse fyrir verkið The Seasons’ Canon hjá Paris Opera Ballet. Árið 2018 hlaut hún Grand Prix de la danse de Montréal. Hún hefur einnig hlotið fimm Laurence Olivier Awards fyrir verk sín með Kidd Pivot og The Royal Ballet.

Þýtt af Lilju Björk Haraldsdóttur, formanni Félags íslenskra listdansara.

Alþjóðlegi dansdagurinn 2026

Ávarp 

Við drögum andann. Hjartað slær taktinn. Hugurinn reikar. Rýmið faðmar okkur. Jörðin styður við okkur. Frumurnar iða. Innra með okkur er hreyfing. Inní okkur er dans. Ördans. Smá dans. Líkaminn dansar. Við erum að dansa. 

Við erum dansarar. Hreyfum okkur í takt við lífið. Stundum finnum við flæðið. Stundum dettum við úr takti. Stundum er dansinn áreynslulaus, stundum krefjandi. Stundum dönsum við dans annarra. Stundum dönsum við okkar eigin dans. 

Dansinn er allt og allskonar.  Dansinn er svona og hinsegin. Flókinn og einfaldur. Heilagur og himneskur. Getur jafnvel virst yfirnáttúrulegur. Hann getur líka verið óþægilegur og skrýtinn. En hann er fyrst og fremst líkamlegur og kemur úr kjarnanum okkar. Líkamanum. 

Að dansa er að vera. Vera lifandi. Vera í augnablikinu. Dansinn á heima í augnablikinu. Hann birtist jafnskjótt og hann hverfur. Það er ekki hægt að festa hann. Hvorki í tíma né rými. Hann er hverfull. Ósnertanlegur. En hann lifir innra með okkur. Í líkamanum. 

Í dansinum tengjumst við fleiri líkömum. Við lifum á tímum þar sem það hefur aldrei verið auðveldara að tengjast öðrum en á sama tíma erum við að fjarlægjast hvort annað, líkamlega. Líkamar eru á hreyfingu um allan heim. Yfir lönd og landamæri. Af fúsum og frjálsum vilja, en líka af illri nauðsyn. Á flótta. Í leit að öryggi. Í leit að frelsi. Í leita að því að tilheyra. Í leit að tengingu. Tengingu við aðra líkama.

Í dag minnumst við þess að dansinn tilheyrir ekki bara sumum, heldur okkur öllum. Við eigum öll líkama og allir líkamar hafa möguleika á því að tjá sig og tengjast. Í því felst frelsi sem er ekki sjálfgefið. Frelsið er brothætt. Að hreyfa sig frjálslega er einföld en djúp athöfn. Leið til að finna fyrir okkur. Finna fyrir líkamanum, rýminu sem við deilum og tímanum sem við lifum í. Þegar við hreyfum líkamann, án ótta og án hafta, opnast rými þar sem við erum öll dansarar. Þar verður dansinn ekki aðeins listform, heldur réttur okkar, upplifun og sameiginlegt tungumál sem tengir okkur saman. 

Dragðu andann. Hlustaðu á hjartað. Leyfðu huganum að reika. Faðmaðu rýmið. Leyfðu jörðinni að styðja við þig. Finndu frumurnar iða. Dansaðu. 

Steinunn Ketilsdóttir 

Danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins

Steinunn Ketilsdóttir

Steinunn Ketilsdóttir var 25 ára þegar hún flutti til New York til að læra dans eftir að hafa lokið BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Árið 2005 útskrifaðist hún með BA í dansi frá Hunter College í NY með hæstu einkunn og hlaut verðlaun fyrir frammistöðu í námi. Eftir útskrift tók við farsæll ferill í tíu ár. En árið 2015 snéri hún aftur til NY í meistaranám í Performance Studies við Tisch School of the Arts NYU. Þaðan útskrifaðist hún árið 2016 og hlaut verðlaun við útskrift. Steinunn hefur átt farsælan feril, tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum hér á landi og erlendis og unnið með fjölda listamanna. Verk hennar hafa verið sýnd víðsvegar, í 18 löndum í bæði Evrópu og N- og S-Ameríku. Hún hefur hlotið átta tilnefningar til Grímuverðlauna og hlaut tvenn Grímuverðlaun fyrir verkið Superhero.

Steinunn hefur komið víða við. Um árabil hefur hún verkefnastýrt eigin verkefnum og verið í framvarðasveit í sjálfstæða danssamfélaginu á Ísland. Hún hefur átt drjúgan þátt í að móta starfsemi Reykjavík Dance Festival allt frá árinu 2006. Steinunn var einn af stofnmeðlimum Samtaka um danshús sem settu á fót Dansverkstæðið. Hún hefur setið í stjórn Félags íslenskra listdansara og verið fulltrúi Íslands í Aerowaves European Dance Network. Steinunn er reyndur kennari og hefur kennt við Listdansskóla Íslands, Kvikmyndaskóla Íslands og víðar. Hún starfaði hjá Listaháskóla Íslands um árabil þar sem hún sinnti kennslu, leiðbeinslu og hélt fyrirlestra og vinnustofur í tengslum við verk sín og rannsóknir. Auk þess gegndi hún stöðu gestarannsakanda og fagstjóra samtímadansnáms. Steinunn var deildarfoseti sviðslistadeildar á árunum 2020-2024.

Í dag beinist listrænt starf Steinunnar að listrænum verkefnum og rannsóknum. Má þar nefna rannsóknarverkefnið EXPRESSIONS: the power and politics of expectations in dance og sóló rannsóknarverkefnið OVERSTATEMENT/OVERSTEINUNN: Expressions of Expectations. Í þessum verkefnum eru það forvitni um væntingar, hvaðan þær koma og hvaða áhrif þær hafa á okkur, sem drífa hana áfram.  Steinunn starfar jafnframt sem framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins. 

-
Aðrar fréttir
Allar fréttir
No items found.