.png)
Sviðslistamiðstöð Íslands, í samstarfi við Íslandsstofu, Reykjavík Dance Festival, Íslenska dansflokkinn og Dansverkstæðið, auglýsir eftir umsóknum frá danshöfundum og listafólki sem vinnur með líkamann sem sinn helsta miðil til þátttöku í Icelandic Dance Showcase 2026.
Viðburðurinn fer fram innan ramma Reykjavík Dance Festival 2026 (11.–15. nóvember) og er ætlað að styrkja alþjóðlegan sýnileika íslenskrar danslistar í kjölfar þess að ICE HOT Nordic Dance Platform var aflýst árið 2026.
Icelandic Dance Showcase er nýtt framtak sem hannað er til að efla alþjóðlegan sýnileika og dreifingu íslenskra dansverka. Markmiðið er að styðja við listafólk í að þróa alþjóðlegar áherslur varðandi framsetningu og ferðalög verka sinna. Vettvangurinn styður bæði við sýningarferðalög og uppbyggingu alþjóðlegs samstarfs til lengri tíma.
Á showcase-inu verður boðið upp á valin verk í þremur formum — sýningar í fullri lengd, stutt sýnishorn/valin brot (demos) og kynningar (pitch presentations) — fyrir boðsgesti úr röðum listrænna stjórnenda hátíða og sýningarstaða, menningarblaðamanna, auk áhorfenda Reykjavík Dance Festival.
Samhliða showcase-inu verður boðið upp á sérsniðna dagskrá fyrir alþjóðlega gesti sem tengir listafólk og samtök í íslenska dansgeiranum við listræna stjórnendur og aðra fagaðila í gegnum fundi, kynningar og tengslamyndun.
Listafólk sem valið verður til þátttöku verður hluti af dagskrá Icelandic Dance Showcase á Reykjavík Dance Festival 2026 og hluti af alþjóðlegu gestadagskránni.
Þátttaka felur í sér:
Sækja má um með:
Hvatt er til umsókna frá jafnt upprennandi sem rótgrónu listafólki. Umsækjendur eru hvattir til að huga að framsetningu og tæknilegum lausnum sem henta fyrir sýningarferðalög og ólíkar aðstæður.
Viðmið og áheyrslur
Umsóknir verða metnar út frá:
Valið er í höndum nefndar skipaðrar fulltrúum samstarfsaðila og sérfræðingum.