Undirstaða þess að sviðslistir fái þrifist sem atvinnugrein er samstaða þeirra sem í henni starfa. Hér er yfirlit yfir þau stéttarfélög og hagsmunasamtök sem standa vörð um réttindi, kjör og höfundarrétt í greininni. Þessir aðilar gæta hagsmuna listamanna og tæknifólks og tryggja að rödd stéttarinnar sé skýr í samfélagslegri umræðu og stefnumótun.

Heildarsamtök fagfélaga listafólks á Íslandi. BÍL gætir hagsmuna listamanna gagnvart stjórnvöldum, styður við vöxt íslenskra lista og er helsti umsagnaraðili ríkis og borgar um málefni er varða menningu og listsköpun.
Nánar
Hagsmunasamtök fyrir sjálfstætt starfandi sviðslistafólk og leikhópa. SL gætir hagsmuna geirans gagnvart stjórnvöldum, berst fyrir bættu starfsumhverfi og veitir félagsmönnum hagnýtan stuðning við fjármögnun og umsóknargerð.
Nánar
Heildarsamtök sviðslista á Íslandi og sameiginlegur vettvangur fagfélaga, stofnana og sjálfstæðra hópa. SSÍ mótar sameiginlega stefnu, gætir hagsmuna greinarinnar gagnvart stjórnvöldum og á og rekur Grímuna – Íslensku sviðslistaverðlaunin.
Nánar
Fagfélag sem gætir hagsmuna danshöfunda á Íslandi. DFÍ vinnur að bættum starfsskilyrðum og samningum, eflir faglega samstöðu og stendur vörð um höfunda- og hugverkarétt stéttarinnar.
Nánar
Fagfélag hönnuða í sviðslistum og kvikmyndum. FLB gætir hagsmuna og höfundarréttar leikmynda- og búningahöfunda, vinnur að bættum starfsskilyrðum og samningum, og eflir fagmennsku á sviði sjónrænnar hönnunar.
Nánar
Fag- og stéttarfélag höfunda sem skrifa fyrir svið, ljósvakamiðla og kvikmyndir. FLH gætir hagsmuna og höfundarréttar leikskálda og handritshöfunda, annast samningagerð við leikhús og framleiðendur, og stuðlar að eflingu íslenskrar leikritunar og handritagerðar innanlands sem utan.
Nánar
Fagfélag leikstjóra á Íslandi vinnur að bættum kjörum, höfundarrétti og starfsskilyrðum stéttarinnar. Félagið er málsvari leikstjóra gagnvart leikhúsum og stjórnvöldum og eflir faglega samstöðu innan greinarinnar.
Nánar
Stéttarfélag leikara, dansara og sviðslistafólks á Íslandi. Félagið gætir hagsmuna listafólks í kjaramálum, veitir lögfræðilega ráðgjöf og stendur vörð um réttindi þeirra sem starfa í faginu.
Nánar
Sameiginlegur vettvangur og málsvari listdansins á Íslandi. FÍLD gætir hagsmuna danslistafólks, skóla og hópa gagnvart stjórnvöldum, vinnur að bættu starfsumhverfi og stuðlar að auknum sýnileika og framþróun listgreinarinnar.
Nánar
Fagfélag sem eflir starfsvettvang klassískra söngvara, gætir hagsmuna þeirra varðandi opinber framlög og vinnur að því að fagleg sjónarmið og vinnubrögð ríki í íslenskri söng- og óperulist.
Nánar
Öflugt stéttarfélag tæknifólks í sviðslistum, kvikmyndagerð, fjölmiðlum og símaþjónustu. Skerpa (áður FTR og FTF) gætir hagsmuna yfir 2.400 félaga, annast kjarasamninga í samstarfi við RSÍ og styður við endurmenntun og starfsvöxt tæknifólks.
Nánar