By clicking “Accept”, you confirm that cookies are stored on your device to enhance user experience, analyze site usage, and assist with our marketing efforts. View our privacy policy for more information.
Cookie Policy
When you visit websites, they may store or retrieve data in your browser using cookies. This is often necessary for the basic functionality of the website. Cookies may be used for marketing, analytics, or to personalize the site, for example, to store your preferences.

Your privacy is important to us. Therefore, you have the option to disable certain types of cookies that are not essential for the basic functionality of the website. Disabling these cookies may affect your experience on the website.
Manage cookies by category
Necessary
Always active
These cookies are essential for the basic functionality of the site.
Marketing
These cookies are used to display advertisements that are more relevant to you and your interests. They may also be used to measure the effectiveness of advertising campaigns or limit the number of times you see ads. Marketing companies place them with the website operator's permission.
Personalization
These cookies allow the website to remember your settings (such as username, language, or region) and provide a better, more personalized experience.
Analytics
These cookies help the website operator monitor site activity, how visitors use it, and whether any technical issues arise. These cookies do not collect information that identifies visitors.
11.5.25

Kynning á íslenskum leikskáldum í Helsinki

Vel heppnaður viðburður í Viirus-leikhúsinu þar sem flutt voru brot úr verkum Hrafnhildar Hagalín og Tyrfings Tyrfingssonar.

Sviðslistamiðstöð Íslands, í samstarfi við Sendiráð Íslands í Finnlandi, Íslandsstofu, Viirus-leikhúsið og Nordic Drama Corner, stóð  fyrir vel heppnaðri kynningu á íslenskum leikskáldum í Viirus-leikhúsinu í Helsinki, mánudaginn 3. nóvember.

Viðburðurinn var afar vel sóttur og mættu um 50–60 gestir — meðal annars fulltrúar finnskra leikhúsa, leikskálda, leikara og menningarstofnana — til að kynnast nýrri íslenskri leikritun og efla tengsl milli íslensks og finnsks leikhúslífs.

Eftir ávarp frá Haraldi Aspelund, sendiherra Íslands í Finnlandi, kynnti Sviðslistamiðstöðin stöðu og þróun íslensks sviðslistaumhverfis. Að því loknu voru fluttar leiklesnar senur úr tveimur nýjum íslenskum verkum sem endurspegla breidd og sköpunarkraft íslenskrar leikritunar.

Flutt voru brot úr:

- Heim eftir Hrafnhildi Hagalín — frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í febrúar 2025.

- Rými fyrir ást (Space for Love) eftir Tyrfing Tyrfingsson — verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á komandi leikári.

Leiklestrarnir voru fluttir á finnsku af framúrskarandi leikhópi — Marjaana Maijala, Anna Airola, Aleksi Holkko og Timo Ruuskanen — og fylgdu þeim líflegar umræður við leikskáldin ásamt móttöku þar sem gestir nutu góðs félagsskapar og tækifæris til tengslamyndunar.

Daginn eftir hélt íslenska sendinefndin áfram heimsókn sinni og átti fjölda funda og óformlegra samtala við fulltrúa finnskra leikhúsa og listamanna, þar sem rætt var um möguleg framtíðarsamstarf milli íslensks og finnsks sviðslistafólks.

Viðburðurinn í Helsinki er liður í verkefni Sviðslistamiðstöðvar Íslands sem miðar að því að kynna íslensk leikskáld erlendis og efla skapandi samtal á sviði leiklistar á Norðurlöndum.

Næsti viðburður í röðinni fer fram í Ósló þriðjudaginn 11. nóvember, í Sendiráði Íslands í Noregi, í tengslum við hátíðahöld vegna Dags íslenskrar tungu.

Harald Aspelund sendiherra Íslands í Finnlandi - Somephoto / Pire
Tyrfingur Tyrfingsson, Hrafnhildur Hagalín og Friðrik Friðriksson - Somefoto / Piret
Anna Airola, Timo Ruuskanen and Aleksi Holkko - Somfoto / Piret
-