By clicking “Accept”, you confirm that cookies are stored on your device to enhance user experience, analyze site usage, and assist with our marketing efforts. View our privacy policy for more information.
Cookie Policy
When you visit websites, they may store or retrieve data in your browser using cookies. This is often necessary for the basic functionality of the website. Cookies may be used for marketing, analytics, or to personalize the site, for example, to store your preferences.

Your privacy is important to us. Therefore, you have the option to disable certain types of cookies that are not essential for the basic functionality of the website. Disabling these cookies may affect your experience on the website.
Manage cookies by category
Necessary
Always active
These cookies are essential for the basic functionality of the site.
Marketing
These cookies are used to display advertisements that are more relevant to you and your interests. They may also be used to measure the effectiveness of advertising campaigns or limit the number of times you see ads. Marketing companies place them with the website operator's permission.
Personalization
These cookies allow the website to remember your settings (such as username, language, or region) and provide a better, more personalized experience.
Analytics
These cookies help the website operator monitor site activity, how visitors use it, and whether any technical issues arise. These cookies do not collect information that identifies visitors.
6.1.26

Nýr þáttur af Sviðsljósinu: Óperan tekur á sig mynd

Hvernig byggir maður óperu?

Í nýjasta þætti Sviðsljóssins ræðir Salka Guðmundsdóttir við Finn Bjarnason, óperustjóra Óperunnar, um fyrstu mánuðina í uppbyggingu nýrrar ríkisstofnunar á sviði sviðslista. Rætt er um fyrstu ráðningarnar, stofnun söngvarahóps, framtíðarsýn Óperunnar og undirbúning fyrstu stóru uppfærslunnar, Falstaff eftir Verdi.

Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir frá því að Finnur tók við starfinu en þegar er hafin vinna við að móta þá starfsemi sem á að verða burðarás íslenskrar óperulistar á komandi árum. Hann segir fyrstu verkefnin hafa snúist um að byggja upp grunninn:

„Þessar ráðningar eru náttúrulega mjög mikilvægar að byggja svona grunnstoðirnar fyrir stofnunina.“

Samhliða ráðningum hefur verið unnið að myndun söngvarahóps sem mun gegna lykilhlutverki í starfsemi Óperunnar. Til að byrja með verða fjórir söngvarar ráðnir í haust og tveimur bætt við eftir áramót.

Ópera fyrir alla landsmenn

Óperan hefur öðruvísi hlutverk en forveri hennar, Íslenska óperan. Sem ríkisstofnun er henni ætlað að sinna ekki aðeins sýningahaldi heldur einnig fræðslu, nýsköpun og tengslum við landsbyggðina.

„Þetta er ópera fyrir alla landsmenn.“

Finnur leggur áherslu á að starfsemin verði fjölbreytt. Annars vegar verði stórar uppfærslur á borð við Falstaff í Eldborg, hins vegar smærri verkefni víðs vegar um landið í samstarfi við ólíka aðila. Fræðsla verði jafnframt mikilvægur þáttur í starfseminni og lykill að því að kynna nýjum kynslóðum listformið.

„Það er bara mikilvægt að koma því snemma inn hjá fólki að þetta sé eitthvað sem eigi erindi við það.“

Tækifæri fyrir söngvara og samstarf við grasrótina

Í viðtalinu ræðir Finnur einnig um starfsumhverfi söngvara og þau tækifæri sem stofnun Óperunnar getur skapað fyrir íslenskt söngfólk. Með tilkomu fastráðins söngvarahóps skapast möguleikar sem hingað til hafa verið takmarkaðir hér á landi.

„Það er líka bara gott að geta boðið þessum frábæru söngvurum sem annars verða að fara eitthvert annað til þess að geta unnið, að geta komið heim og sinnt listforminu þar.“

Þá er fjallað um samband Óperunnar við sjálfstæðu óperusenuna, samstarf við Þjóðleikhúsið og Hörpu og þá sérstöðu að starfsemin byggir ekki á eigin óperuhúsi. Finnur lítur á það sem tækifæri fremur en takmörkun.

„Við getum verið svolítið kvik og vonandi boðið upp á ólík og spennandi verkefni.“

Þátturinn veitir innsýn í eitt stærsta uppbyggingarverkefni íslensks sviðslista- og tónlistarlífs um þessar mundir og þá sýn sem liggur að baki framtíð óperulistar á Íslandi.

Hlustaðu á þáttinn á Spotify eða þar sem þú nálgast hlaðvörp.

-