By clicking “Accept”, you confirm that cookies are stored on your device to enhance user experience, analyze site usage, and assist with our marketing efforts. View our privacy policy for more information.
Cookie Policy
When you visit websites, they may store or retrieve data in your browser using cookies. This is often necessary for the basic functionality of the website. Cookies may be used for marketing, analytics, or to personalize the site, for example, to store your preferences.

Your privacy is important to us. Therefore, you have the option to disable certain types of cookies that are not essential for the basic functionality of the website. Disabling these cookies may affect your experience on the website.
Manage cookies by category
Necessary
Always active
These cookies are essential for the basic functionality of the site.
Marketing
These cookies are used to display advertisements that are more relevant to you and your interests. They may also be used to measure the effectiveness of advertising campaigns or limit the number of times you see ads. Marketing companies place them with the website operator's permission.
Personalization
These cookies allow the website to remember your settings (such as username, language, or region) and provide a better, more personalized experience.
Analytics
These cookies help the website operator monitor site activity, how visitors use it, and whether any technical issues arise. These cookies do not collect information that identifies visitors.
10.7.25

Opið fyrir umsóknir um þýðingastyrki – Október 2025

Sviðslistamiðstöð Íslands kynnir með ánægju að opnað hefur verið fyrir umsóknir um þýðingastyrki. Umsóknarfrestur er til 31. mars 2025, kl. 16:00.

Breytt skilyrði – Vilyrði um sýningu ekki lengur krafa

Við viljum vekja sérstaka athygli á því að skilyrði styrkveitinga hafa verið rýmkuð. Nú er ekki lengur krafa um að fyrir liggi vilyrði fyrir sýningu verksins erlendis. Þess í stað er lögð áhersla á að umsækjendur leggi fram greinargerð um fyrirhugaða kynningu og dreifingu þýðingarinnar.

Markmið þýðingastyrkja

Markmið þýðingastyrkjanna er að vekja áhuga, auka sýnileika og eftirspurn eftir íslenskum leikritum og sviðslistaverkum á alþjóðavettvangi.

Hverjir geta sótt um?

Styrkirnir eru ætlaðir höfundum, leikstjórum, framleiðendum eða fulltrúum leikhúsa og hátíða sem hyggjast þýða frumsamin íslensk leikverk á önnur tungumál. Leikverkið þarf að hafa verið frumsýnt á Íslandi áður en sótt er um þýðingu.

Hvað er styrkt?

• Þýðingar á frumsömdum íslenskum leikverkum yfir á önnur tungumál.

• Textun (subtitle) á íslenskum sviðsverkum fyrir sýningar utan Íslands.

Athugið:

• Sviðslistamiðstöð fullfjármagnar ekki þýðingar.

• Þýðingin skal unnin beint úr íslensku.

• Æskilegt er að þýðandi hafi það tungumál sem þýtt er á að móðurmáli.

• Stuðningur við aðlögunar- eða framleiðslukostnað fellur ekki undir þennan styrk.

Hvernig skal sækja um?

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum umsóknarformið sem finna má á heimasíðu Sviðslistamiðstöðvar. Umsóknarfrestur rennur út 31. október 2025, kl. 16:00.

Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknarferlið má finna á heimasíðu okkar.

Við hvetjum alla áhugasama til að nýta þetta tækifæri til að kynna íslensk sviðslistaverk fyrir alþjóðlegum áhorfendum.