Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
8.25.26

Hver getur hellt upp á? Bransadagur sviðslistanna um framleiðslu og hlutverk framleiðandans

Hver getur hellt upp á?

Bransadagur sviðslistanna um framleiðslu og hlutverk framleiðandans

Föstudagur 11. september 2026
13:00–17:00
Salur Sviðslistamiðstöðvar Íslands, Austurstræti 5
Ókeypis – skráning nauðsynleg

Hvað gerir framleiðandi í sviðslistum – og hvaða áhrif getur öflug framleiðsla haft á þróun verka, samstarf, dreifingu og líftíma þeirra?

Á Bransadegi sviðslistanna í haust beinum við sjónum að framleiðandanum og framleiðslunni. Með ólíkum sjónarhornum frá Íslandi og Norðurlöndunum skoðum við hvernig hlutverk framleiðandans getur birst, hvernig framleiðsla tengist listrænni þróun og hvaða þekking, tengsl og stuðningsumhverfi þarf til að skapa góð skilyrði fyrir framleiðslu sviðslista.

Framleiðsla snýst um meira en skipulag og framkvæmd. Framleiðandi getur komið að verkefni frá fyrstu stigum, tekið þátt í þróun þess, fjármögnun og áætlanagerð, byggt upp samstarf og samframleiðslu og skapað tengingar við sýningarstaði, samstarfsaðila og alþjóðlegt umhverfi. En það er ekkert eitt framleiðandahlutverk eða framleiðslumódel.

Á Bransadeginum spyrjum við meðal annars: Hvenær verður framleiðandinn ómissandi? Styður núverandi kerfi við framleiðendur og framleiðslu? Og hvernig getum við skapað sviðsverkum lengra líf, hér heima og á alþjóðlegum vettvangi?

SKRÁ MIG Á BRANSADAG OG/EÐA VINNUSTOFU

Dagskrá

13:00 – Opnun
Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands, setur Bransadaginn.

13:10 – Hlutverk framleiðandans í norrænum sviðslistum
Sigrid Aakvik, Creative Producer, Art & About

Hlutverk framleiðandans hefur á undanförnum árum þróast langt út fyrir hefðbundna verkefnastjórnun. Sigrid Aakvik byggir á reynslu sinni frá Danmörku, Noregi og norrænu sviðslistasenunni og fjallar um framleiðandann sem samstarfsaðila í listrænni þróun, samframleiðslu, alþjóðlegri dreifingu og uppbyggingu sjálfbærari starfsferils listafólks og hópa.

13:30 – Spurningar og samtal

13:40 – Pallborð: Framleiðandinn – brú milli listar, framkvæmdar og framtíðar

Sigrid Aakvik, Creative Producer, Art & About
Ragnheiður Maísól Sturludóttir, framleiðandi, MurMur
Máni Huginsson, framleiðslustjóri Þjóðleikhússins
Aude Busson, sviðslistakona

Fjórar raddir með ólíka reynslu af framleiðslu ræða hlutverk framleiðandans, samstarf listafólks og framleiðenda og þær ólíku aðstæður sem framleiðsla sviðslista fer fram við.

14:20 – Spurningar og samtal

14:30 – Kaffihlé

14:50 – Stafræn verkfæri í framleiðslu
Friðþjófur Þorsteinsson

Stutt innlegg um hvernig stafræn verkfæri geta stutt við skipulag, samskipti og verkefnastjórnun í sviðslistaframleiðslu. Showdeck.io verður tekið sem eitt dæmi um þau verkfæri sem standa til boða.

15:05 – Hringborðsumræður

Þátttakendur fara á milli þriggja umræðuborða þar sem kafað verður dýpra í lykilspurningar dagsins. Markmiðið er að fá fleiri raddir inn í samtalið og draga fram hugmyndir og sjónarmið sem hægt er að taka áfram.

16:20 – Samantekt og samtal: Hvað tökum við áfram?

Stjórnendur umræðuborðanna draga saman helstu punkta úr samtölunum. Í framhaldinu verður opið samtal með þátttakendum og fulltrúum stjórnvalda og stuðningskerfis.

Hvaða sameiginlegu áskoranir hafa komið fram? Hvar eru tækifærin? Og hvað getum við tekið áfram til að styrkja framleiðslu, starfsþróun og stuðningsumhverfi íslenskra sviðslista?

16:55 – Lokaorð

Helstu þræðir dagsins dregnir saman og vinnustofan daginn eftir kynnt.

17:00 – Dagskrárlok og léttar veitingar

Viltu kafa dýpra? Vinnustofa 12. september

Laugardagur 12. september 2026
10:00–15:00
Salur Sviðslistamiðstöðvar Íslands, Austurstræti 5
Skráningargjald 6.900 kr. Hádegismatur innifalinn í skráningargjaldi

Daginn eftir Bransadaginn verður boðið upp á hagnýta vinnustofu með Sigrid Aakvik og Ragnheiði Maísól Sturludóttur fyrir framleiðendur, upprennandi framleiðendur og listafólk sem framleiðir eigin verkefni.

Vinnustofan byggir áfram á samtalinu frá Bransadeginum en fer dýpra í hagnýta þætti framleiðslustarfs. Fjallað verður meðal annars um:

  • fjármögnun og styrkjaöflun
  • tengslamyndun
  • markaðssetningu
  • sýningarferðir
  • dreifingu verka

Áhersla verður lögð á verkfæri, aðferðir og reynslu sem þátttakendur geta nýtt í eigin verkefnum.

Takmarkaður fjöldi sæta.

Nánari upplýsingar um dagskrá verður kynnt fljótlega.

SKRÁ MIG Á BRANSADAG OG/EÐA VINNUSTOFU

Bransadagur sviðslistanna er vettvangur þar sem fagfólk úr öllum kimum greinarinnar kemur saman til að ræða, hlusta og hugsa saman um þróun og framtíð sviðslista á Íslandi.

Bransadagurinn og vinnustofan eru hluti af verkefninu Hvem kan lage kaffe? A Producer Exchange between Norway and Iceland, samstarfsverkefni MurMur, Art & About, RAS og Sviðslistamiðstöðvar Íslands.

Verkefnið hlaut styrk úr Norsk-islandsk kultursamarbeid, styrkjaáætlun á vegum Kulturdirektoratet (Arts and Culture Norway).

-