Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
6.25.26

Þegar sviðin verða að lundabúðum

Nýr þáttur á ensku af Sviðsljósinu með pallborði frá SIBMAS-ráðstefnunni

„What used to be an empty space downtown … those places are now selling puffins.“

Þannig lýsti Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, einni af stærstu breytingunum sem orðið hafa á starfsumhverfi sjálfstæðra sviðslista í Reykjavík á undanförnum árum.

Orðin féllu á opnu pallborði um stöðu sjálfstæðra sviðslista á Íslandi sem fram fór í Iðnó í tengslum við alþjóðlegu SIBMAS-ráðstefnuna í júní. Ráðstefnan var haldin af Leikminjasafni Íslands við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn undir stjórn Sigríðar Jónsdóttur, verkefnastjóra Leikminjasafns.

Umræðunum stjórnaði Salka Guðmundsdóttir leikskáld og þýðandi. Með henni sátu Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, Aðalbjörg Árnadóttir leikstjóri og leikkona og Anna María Tómasdóttir leikstjóri.

Á pallborðinu var rætt um þróun sjálfstæðrar sviðslistasenunnar á Íslandi, skort á æfinga- og sýningarrými, samkeppni um opinbert fjármagn, fyrirhugaða sviðslistastefnu, alþjóðlegt samstarf og mikilvægi þess að varðveita sögu íslenskra sviðslista. Þrátt fyrir krefjandi starfsumhverfi var umræðan jafnframt full af húmor, bjartsýni og trú á framtíð sjálfstæðu senunnar.

Eftirminnileg var einnig athugasemd Snæbjörns um fjölbreytni verkefna sem berast Tjarnarbíói:

“Most applications to show in Tjarnarbíó are completely unmarketable and almost impossible to perform. So there are still really unpractical dreamers on the scene.”

Með góðfúslegu leyfi Leikminjasafns Íslands birtir Sviðslistamiðstöð Íslands nú upptöku af pallborðinu sem sérstakan þátt á ensku í hlaðvarpinu Sviðsljósið. Þar gefst hlustendum tækifæri til að kynnast af eigin raun líflegri og hreinskilinni umræðu um stöðu, áskoranir og framtíð sjálfstæðra sviðslista á Íslandi.

-