
Iceland Moves — við bjóðum heim
Íslenskt danslistafólk hefur lengi látið að sér kveða víða um heim. Í nóvember bjóðum við heiminum í heimsókn til okkar.
Dagana 11.–15. nóvember fer Iceland Moves fram í tengslum við Reykjavík Dance Festival. Við tökum á móti erlendum hátíðarstjórum, listrænum stjórnendum og framleiðendum sem koma til að sjá verkin, hitta danslistafólkið og kynnast danssenunni hér á landi.
Á dagskránni eru sýningar í fullri lengd, brot úr verkum í þróun og kynningar á því sem er í farvatninu. Þar mætast dansarar og danshöfundar sem starfa á Íslandi og íslenskir danshöfundar sem hafa skapað sér starfsvettvang erlendis.
Við viljum gefa verkunum færi á að ferðast lengra og skapa rými fyrir samtöl sem geta orðið að samstarfi. Til þess þarf fólk að hittast, sjá verk hvert annars og fá tíma til að tala saman.
Iceland Moves er samstarfsverkefni Sviðslistamiðstöðvar Íslands, Reykjavík Dance Festival, Íslenska dansflokksins, Dansverkstæðisins og Íslandsstofu.
Dagskrá Reykjavík Dance Festival er nú komin í loftið. Á næstu vikum kynnum við danshöfundana og verkin á Iceland Moves á miðlum okkar.
Dagskrá og nánari upplýsingar:
https://www.icelandmoves.is