Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
2.16.26

Opið kall: Á sýningin þín erindi á erlenda markaði?

Sviðslistamiðstöð leitar að sviðslistafólki og hópum sem vilja kynna verk sín, víkka tengslanetið og sækja sér nýja þekkingu á CINARS í Montréal, 9.–14. nóvember 2026.

Um er að ræða sérstakan stuðningspakka Sviðslistamiðstöðvar þar sem allt að þrjú verkefni verða valin til þátttöku. Athugið að CINARS er öllum opið og fólki er frjálst að skrá sig og sækja ráðstefnuna á eigin vegum óháð þessu kalli.

Hvað er CINARS og Nordic Pulse?

CINARS tvíæringurinn í Montréal er einn stærsti vettvangur heims fyrir alþjóðleg tengsl í sviðslistum. Þetta er líflegur suðupottur þar sem tæplega 1.400 manns úr öllum áttum koma saman – listafólk, hátíðarstjórar og umboðsmenn frá tæplega 50 löndum.

Á CINARS gefst tækifæri til að sjá yfir 120 fjölbreyttar sýningar, sækja vinnustofur og taka þátt í samtali um það sem er efst á baugi í sviðslistum í dag. Framar öllu er þetta staður til að kynnast fólki í bransanum og byggja upp dýrmæt langtímatengsl.

Verkefnin sem verða fyrir valinu fá tækifæri til að kynna sig á Nordic Pulse, sem er sérstakur kynningarfundur (pitch session) Norðurlandanna á hátíðinni. Þar fær einn fulltrúi frá hverju verkefni tækifæri til að kynna listræna sýn sína fyrir völdum hópi alþjóðlegs fagfólks.

Undirbúningur og samstarf

Við leggjum áherslu á að þátttakendur fái sem mest út úr ferðinni. Þau sem verða fyrir valinu skuldbinda sig til að taka þátt í undirbúningsferli sem felur í sér:

  • Þátttöku á námskeiðum Sviðslistamiðstöðvar: Forgangur og frír aðgangur að opnum námskeiðum miðstöðvarinnar (t.d. um framleiðslu sýningarferða og markaðssetningu).
  • 3–5 vinnufundi (á netinu eða staðfundir): Þar fínpúsum við kynningarefnið, æfum stuttu kynninguna (pitch-ið) og skoðum hvernig byggja má upp tengsl erlendis.

Hver geta sótt um?

Tækifærið er opið öllu sviðslistafólki sem starfar á atvinnugrundvelli og er með lögheimili á Íslandi. Við leitum að hópum eða listafólki með sýningar sem eru „tour-ready“ – það er að segja sýningar sem eru tilbúnar til sýninga erlendis.

Valferli

Fagráð fer yfir allar umsóknir og velur þau verkefni sem þykja hafa skýrustu markmiðin og mesta möguleika á þessum tiltekna markaði.

Stuðningur Sviðslistamiðstöðvar

Fyrir þau verkefni sem verða fyrir valinu býður Sviðslistamiðstöð upp á:

  • Aðgangseyrir: Greiðsla skráningargjalds (Delegate Pass) á CINARS fyrir einn fulltrúa.
  • Ferðastyrkur: Fast framlag, 300.000 kr., til að standa straum af flugi, gistingu og uppihaldi.
  • Bakland og ráðgjöf: Sérhæfður stuðningur við undirbúning og tengslamyndun úti.

Athugið: Verkefnum er frjálst að senda fleiri en einn fulltrúa og skipta styrknum á milli sín, en aukafulltrúar bera sjálfir kostnað af skráningargjaldi og ferðum umfram styrkinn.

Umsóknarfrestur er til 23. mars 2026.

SÆKJA UM HÉR

-
Aðrar fréttir
Allar fréttir
No items found.