
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þýðingarstyrki Sviðslistamiðstöðvar Íslands. Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2026 kl. 16:00.
Fyrirkomulag styrkjanna hefur verið endurskoðað með það að markmiði að gera úthlutun skýrari og taka betur mið af umfangi einstakra þýðingarverkefna.
Þýðingarstyrkirnir eru ætlaðir til þýðinga á leikritum og öðrum textabundnum sviðslistaverkum á íslensku yfir á önnur tungumál. Einnig er hægt að sækja um styrk til textunar íslenskra sviðslistaverka vegna sýninga erlendis.
Helsta breytingin er að styrkupphæð miðast nú við lengd íslenska frumtextans. Við útreikning er miðað við 3,75 kr. fyrir hvert stafabil, að hámarki 325.000 kr. fyrir hvert verkefni. Samningsbundinn kostnaður við þýðinguna er einnig tekinn til greina og styrkur getur aldrei verið hærri en sá kostnaður sem fram kemur í samningi við þýðanda.
Jafnframt hefur verið skýrt að þýðing þarf ekki að tengjast þegar staðfestri sýningu erlendis. Hægt er að sækja um vegna þýðinga sem ætlað er að styðja við alþjóðlega kynningu, dreifingu og tengslamyndun, enda liggi fyrir skýr og raunhæf áætlun um hvernig þýðingin verði nýtt.
Reynslan af þýðingarstyrkjunum sýnir hvernig þýðing getur orðið fyrsta skrefið í lengra alþjóðlegu ferli. Meðal höfunda sem hafa hlotið stuðning á undanförnum árum eru Birnir Jón Sigurðsson, Tyrfingur Tyrfingsson og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir.
Lúna eftir Tyrfing Tyrfingsson var frumsýnd í finnskri þýðingu hjá Rakastajat-teatteri í Pori í ágúst 2026. Annað verk hans, Sjö ævintýri um skömm, hafði áður verið sett upp hjá KOM-teatteri í Helsinki. Helgi Þór rofnar, sem einnig hlaut þýðingarstyrk Sviðslistamiðstöðvar, var sett upp í Théâtre de Quat’Sous í Montréal í apríl 2025. Tyrfingur er í umboði Nordic Drama Corner í Finnlandi.
Sýslumaður dauðans eftir Birni Jón Sigurðsson var í september 2026 kynntur á DRAAMA-hátíðinni í Tartu í Eistlandi, þar sem sviðssettur útdráttur úr verkinu var fluttur á eistnesku sem hluti af NEW NORTH verkefninu. Næsta vor tekur verkið svo enn stærra skref þegar það verður frumsýnt í Théâtre de Quat’Sous í Montréal í franskri þýðingu. Birnir er einnig í umboði Nordic Drama Corner.
Verk Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur eru í umboði hjá Nordiska ApS í Kaupmannahöfn. Heim hlaut þýðingarstyrk Sviðslistamiðstöðvar árið 2025 og var í kjölfarið meðal þeirra verka sem miðstöðin kynnti sérstaklega fyrir erlendu leikhúsfólki.
Árið 2025 stóð Sviðslistamiðstöð fyrir kynningum á verkum Hrafnhildar og Tyrfings í Berlín, Helsinki og Osló, þar sem flutt voru leiklesin brot úr verkum þeirra og höfundarnir kynntir fyrir leikhússtjórnendum og öðru fagfólki.
Þessi dæmi sýna að góð þýðing getur þjónað fleiri en einum tilgangi: hún getur verið grunnur að sviðsetningu erlendis, en einnig lykilgagn í kynningu gagnvart leikhúsum, hátíðum, umboðsmönnum og öðrum samstarfsaðilum.
Við mat umsókna er meðal annars horft til listræns og faglegs styrks verksins, möguleika þess til alþjóðlegrar kynningar og samstarfs, reynslu og hæfni þýðanda og fyrirhugaðrar nýtingar þýðingarinnar.
Höfundar, leikstjórar, framleiðendur og fulltrúar leikhúsa eða sviðslistahópa sem standa að sviðslistaverkum á íslensku geta sótt um.
Umsóknarfrestur er 2. nóvember 2026 kl. 16:00.
Nánari upplýsingar um skilyrði, styrkupphæðir og umsókn er að finna á síðu þýðingarstyrkja Sviðslistamiðstöðvar Íslands.