
Hvað þarf til að listafólk geti vaxið í starfi og af hverju skiptir máli að kafa dýpra? Í nýjasta þætti Sviðsljóssins mæta þær Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskólans, og Una Þorleifsdóttir, deildarforseti sviðslistadeildar, í einlægt spjall.
Tilefnið eru spennandi breytingar á meistaranámi sviðslistadeildar. Námið hefur verið til síðan 2016 en nú er lögð ný áhersla á sérhæfingu í leikstjórn, sviðshöfundanámi, kóríógrafíu og leikritun. Markmiðið er að bjóða listafólki upp á rými til að einbeita sér að sínu fagi og þróa eigin aðferðir í nánu samtali við aðra.
Í þættinum líta þær Kristín og Una yfir þann aldarfjórðung sem liðinn er frá stofnun Listaháskólans og ræða hvernig skólinn hefur mótað íslenska sviðslistasenu. Þær rýna líka í starfsumhverfið og pólitíkina: Fær listafólk raunverulegt svigrúm til að rannsaka og prófa sig áfram, eða er kerfið of upptekið af því að dæla út nýjum sýningum?
Una varpar meðal annars fram þeirri spurningu hvort við séum of skammsýn í okkar menningarpólitík: „Ef við viljum annan Laxness þá verður að fjárfesta og gefa tækifæri til þess að hann verði til.“
Hægt er að hlusta á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.