
SviðslistasambandÍslands óskar eftir listrænum stjórnanda fyrir Grímuna 2026.
Gríman - íslensku sviðslistaverðlaunin verða haldin í Þjóðleikhúsinu þann 26.Maí næstkomandi og sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Gríman eruppskeruhátíð íslenskra sviðslista og ein helsta viðurkenning innan greinarinnar.
Á hátíðinni eru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í sviðslistum á liðnu leikári. Sviðslistasamband Íslands stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við aðildarfélög sín, stofnanir og RÚV, með það að markmiði að skapa glæsilega, faglega og eftirminnilega hátíð.
Listrænn stjórnandi ber ábyrgð á listrænni heildarsýn og framkvæmd hátíðarinnar í nánu samstarfi við verkefnastjóra Grímunnar, RÚV og gestgjafaleikhús. Starfið felur í sér að móta listrænt yfirbragð hátíðarinnar og samhæfa listræna þætti hennar frá undirbúningi til framkvæmdar.
Helstu verkefni eru meðal annars að:
● móta listræna sýn hátíðarinnar, þar á meðal sviðsmynd, stemningu og dagskrárflæði
● velja og vinna með listafólki, verðlaunakynnum og öðrum þátttakendum
● hafa umsjón með skemmtiatriðum og innslögum, þar á meðal undirbúningi og leikstjórn innlestrar tilnefninga í samstarfi við RÚV
● vinna náið með framleiðslu, tækniteymi RÚV og starfsfólki gestgjafaleikhúss
● taka þátt í skipulagningu æfinga og tryggja faglega og heildstæða framkvæmd hátíðarinnar
Listrænn stjórnandi heyrir undir stjórn Sviðslistasambands Íslands og vinnur náið með verkefnastjóra Grímunnar og forseta sambandsins.
Leitað er að einstaklingi sem:
● hefur reynslu af sviðslistum, viðburðargerð og/eða listrænni stjórn
● býr yfir sterkri listrænni sýn og góðum samskiptahæfileikum
● getur unnið sjálfstætt og af frumkvæði, sem og í nánu samstarfi við fjölbreytt teymi
● er skipulagður og getur haldið utan um mörg verkefni samtímis
● hefur góða yfirsýn og skilning á verkaskiptingu og ábyrgð innan listrænnar framleiðslu
Um er að ræða tímabundið verkefni á tímabilinu mars til lok maí 2026. Vinnuálag er breytilegt á tímabilinu og eykst þegar nær dregur hátíð.
Umsóknum, ásamt ferilskrá og stuttri kynningu á umsækjanda, skal senda á
svidslistasambandislands@gmail.com
merkt: Listrænnstjórnandi – Gríman 2026
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2026.