Með því að smella á „Samþykkja“ staðfestir þú að vafrakökur séu geymdar í tækinu þínu til að auka notendaupplifun, greina notkun síðunnar og aðstoða við markaðsstarf okkar. Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar fyrir frekari upplýsingar.
Skilmálar um notkun á vafrakökum
Þegar þú heimsækir vefsíður gætu þær geymt eða sótt gögn í vafrann þínn með vafrakökum (e. cookies). Þetta er oft nauðsynlegt fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Vafrakökurnar gætu verið notaðar til markaðssetningar, greiningar eða til að sérsníða síðuna, t.d. til að geyma kjörstillingar þínar.

Persónuvernd er okkur mikilvæg. Þess vegna hefur þú möguleika á að slökkva á ákveðnum tegundum af vafrakökum sem eru ekki nauðsynlegar fyrir grunnvirkni vefsíðunnar. Þessi útilokun getur haft áhrif á upplifun þína af vefsíðunni.
Stjórnun á vafrakökum eftir flokkum
Nauðsynlegt
Alltaf virkt
Þessar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir grunnvirkni síðunnar.
Markaðssetning
Þessar vafrakökur eru notaðar til að birta auglýsingar sem eiga betur við þig og áhugamál þín. Þær geta einnig verið notaðar til að mæla árangur auglýsingaherferða eða takmarka fjölda skipta sem þú sérð auglýsingar. Markaðsfyrirtæki setja þær inn með leyfi rekstraraðila vefsíðunnar.
Persónulegar stillingar
Þessar vafrakökur gera vefsíðunni kleift að muna stillingarnar þínar (svo sem notendanafn, tungumál eða svæði) og veita betri og persónulegri upplifun.
Greining
Þessar vafrakökur hjálpa rekstraraðila vefsíðunnar að fylgjast með virkni síðunnar, hvernig gestir nota hana og hvort það komi upp tæknileg vandamál. Þessar vafrakökur safna ekki upplýsingum sem auðkenna gesti.
23/11/2026

Iceland Moves fór fram úr væntingum

Mikill áhugi erlendra fagaðila, fjölbreytt íslensk dansverk og afar jákvæð viðbrögð einkenndu Iceland Moves 2026, sem fram fór innan Reykjavík Dance Festival dagana 11.–15. nóvember. Alls voru 39 erlendir faggestir skráðir til þátttöku og 20 íslensk verkefni kynnt á fimm dögum. Fyrstu fregnir af nýjum tækifærum fyrir íslenskt listafólk hafa þegar borist.

Reykjavík varð samkomustaður alþjóðlegs fagfólks í danslist þegar fulltrúar sviðslistahátíða, sýningarstaða og alþjóðlegra tengslaneta komu saman til að kynnast íslenskum samtímadansi. Meðal gesta voru fulltrúar Julidans í Amsterdam, Chaillot í París, Festival TransAmériques í Montréal, PACT Zollverein í Essen og evrópska dansnetsins Aerowaves.

Áhuginn á að koma til Íslands reyndist meiri en skipuleggjendur höfðu gert ráð fyrir. Gestirnir komu ekki aðeins til að sjá sýningar heldur einnig til að hitta íslenskt listafólk, kynnast danssenunni og kanna möguleika á framtíðarsamstarfi.

Hlaðborð af íslenskum dansi

Dagskrá Iceland Moves bauð upp á sannkallað hlaðborð af íslenskum dansi. Átta sýningar í fullri lengd, fimm vinnukynningar og sjö verkefnakynningar gáfu gestunum færi á að kynnast bæði fullbúnum verkum og hugmyndum sem eru enn í þróun.

Úr demo kynningu á Working Title eftir Bertine Bertelssen á Dansverkstæðinu. Ljósmynd: Björgvin Sigurðsson

Þarna komu saman ólíkar kynslóðir danshöfunda, allt frá listafólki sem er að stíga sín fyrstu skref sem höfundar til þeirra sem hafa um árabil mótað íslenska danssenu. Meðal þátttakenda voru Halla Ólafsdóttir, Bára Sigfúsdóttir, Rósa Ómarsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Sóley Ólafsdóttir og Bertine Bertelsen Fadnes, auk fjölda annarra.

Verkin voru jafnólík og þau voru mörg. Húmor og leikgleði einkenndu sum þeirra á meðan önnur beindu sjónum að hinu smáa, nánd og samskiptum. Í öðrum verkum voru hljóð, tónlist og tækni í forgrunni og hefðbundnum hugmyndum um hlutverk dansarans á sviðinu ögrað.

Íslenskur samtímadans sækir innblástur út fyrir mörk danslistarinnar, meðal annars í leikhús, gjörningalist, tónlist og myndlist. Sú leit var áberandi á Iceland Moves, þar sem fjölbreytni í formi og viðfangsefnum gaf sterka mynd af þeirri listrænu grósku sem einkennir íslensku danssenuna.

Íslenski dansflokkurinn tók einnig þátt í dagskránni með sýningunum Current og Flóðreka auk kynningar á nýju verkefni. Þátttaka flokksins bætti enn við þá breiðu mynd sem gestirnir fengu af íslenskri danslist.

Erlendir gestir vilja sjá meira

Alls voru 39 erlendir faggestir skráðir til þátttöku, með tengsl við 14 lönd auk alþjóðlegra sviðslistaneta. Fjöldinn kom skipuleggjendum skemmtilega á óvart og sýndi að verulegur áhugi er á að kynnast íslenskri danslist í því umhverfi sem hún sprettur úr.

Viðbrögðin að hátíð lokinni voru afar jákvæð. Gestir lýstu ánægju með fjölbreytni og gæði verkanna, metnaðarfulla dagskrá og þau fjölmörgu samtöl og kynni sem áttu sér stað. Margir lýstu jafnframt áhuga á að koma aftur til Íslands og fylgjast áfram með því sem er að gerast í íslenskum dansi.

Fyrstu vísbendingar eru þegar komnar fram um að samtöl á hátíðinni hafi leitt til beinna boða til listafólks. Enn á þó eftir að staðfesta umfang þeirra og fylgja eftir þeim tækifærum sem kunna að skapast.

Fleiri leiðir til alþjóðlegs samstarfs

Einn af styrkleikum Iceland Moves var að kynna verk á ólíkum þróunarstigum. Samhliða sýningum í fullri lengd fengu erlendir faggestir að sjá brot úr verkum í vinnslu og hlýða á kynningar á verkefnum sem enn eru á hugmyndastigi.

Erlendir gestir og samstarfsaðilar. Ljósmynd: Björgvin Sigurðsson

Þetta fyrirkomulag opnar fyrir fleiri leiðir til alþjóðlegs samstarfs. Fulltrúar erlendra sviðslistahátíða og sýningarstaða geta fundið fullbúin verk til sýningarhalds en jafnframt kynnst verkefnum sem þeir gætu tekið þátt í að þróa, meðal annars með samframleiðslu, vinnudvölum eða öðrum stuðningi.

Fyrir íslenskt listafólk skiptir slíkur vettvangur miklu máli. Með því að bjóða erlendum fagaðilum til Íslands er hægt að kynna fjölbreytt úrval verka á einum stað, í stað þess að flytja fjölda sýninga á erlendan kynningarvettvang. Um leið gefst gestunum tækifæri til að kynnast listafólkinu, starfsaðstæðum þess og íslensku danssenunni í heild.

Samstarfið lykillinn að árangrinum

Iceland Moves var samstarfsverkefni Sviðslistamiðstöðvar Íslands, Reykjavík Dance Festival, Íslenska dansflokksins og Dansverkstæðisins, með stuðningi Íslandsstofu.

Samstarfið gerði kleift að sameina ólíka þekkingu, tengsl og aðstöðu og byggja upp umfangsmeiri kynningarvettvang en áður hafði verið boðið upp á. Iceland Moves naut jafnframt góðs af umgjörð Reykjavík Dance Festival og fjölbreyttri alþjóðlegri dagskrá hátíðarinnar, sem gaf gestunum enn víðari sýn á samtímadans og alþjóðlega strauma.

Nú tekur við eftirfylgni með þeim tengslum sem mynduðust. Safnað verður upplýsingum um reynslu listafólksins og þau tækifæri sem kunna að skapast í kjölfarið, en slíkt samstarf getur tekið marga mánuði að þróast.

Iceland Moves sýndi hversu miklu er hægt að áorka þegar íslenska danssenan tekur höndum saman og býður erlendum fagaðilum til landsins. Áhuginn er til staðar og nú er mikilvægt að nýta hann til að skapa fleiri tækifæri fyrir íslenskt listafólk.

Nánari upplýsingar um verkefnin og dagskrána má finna á icelandmoves.is.

-